Hvernig virkar það?
Virka efnið í öllum Gengigel vörum er hýalúrónsýra með háan mólþunga, sambærileg þeirri sem líkaminn myndar sjálfur.
Hvað er hýalúrónsýra?
Hýalúrónsýra er sameind sem bindur mikið vatn. Hún er hluti af bandvef líkamans og er í tannholdi og slímhúð munnsins, þar sem hún heldur vefnum rökum og eftirgefanlegum.
Hún gegnir líka hlutverki þegar vefur grær. Þegar sár myndast eða tannhold bólgnar tekur hýalúrónsýra þátt í fyrstu skrefum viðgerðarinnar.
Gengigel er borið beint á svæðið sem gel, úði eða skol. Það loðir við slímhúðina og leggst sem filma yfir svæðið.
Hýalúrónsýra bindur vatn í vefnum og það hjálpar til við að draga úr þrota. Hún styður líka við bandvefsfrumurnar sem byggja vefinn upp á ný.
Hvaðan kemur hún?
Hýalúrónsýran í Gengigel er framleidd með líftækni, með gerjun örvera, og er ekki unnin úr dýravef. Framleiðandinn er Ricerfarma á Ítalíu, sem hefur sérhæft sig í hýalúrónsýru fyrir munnhol.
Perio línan inniheldur að auki klórhexidín, sem dregur úr tannsýklu.
Einkaleyfisvarin tækni
Hýalúrónsýra gerir mest gagn ef hún situr á sínum stað. Þrjár lausnir frá Ricerfarma snúast um það.
Loðir lengur við
Hýalúrónsýran er sameinuð kólín alfóscerati, sem eykur viðloðun hennar við slímhúðina svo filman endist lengur.
Brotnar hægar niður
Askorbýlpalmítat, afleiða C-vítamíns, ver hýalúrónsýruna gegn ensímum sem brjóta hana niður. Það er meðal annars í Gum Protection tannkreminu.
Minni litun af klórhexidíni
Perio vörurnar innihalda Anti-Colour Complex (ACC): lípósýru, askorbýlpalmítat og EDTA, sem draga úr litun tanna af völdum klórhexidíns.
Gott að vita
Samkvæmt upplýsingum framleiðanda um vörurnar sem innihalda eingöngu hýalúrónsýru:
Ein regla gildir um allar vörurnar: ekki borða eða drekka í 30 mínútur eftir notkun, svo efnið fái að sitja á svæðinu.